top of page

Ég sá þig í dag
Hvað amar að
Tár runnu á kinn
Er sársaukinn þinn

 

Segðu mér satt - Þér líður betur margfalt
Deildu með vin – Hann sefar huga þinn

 

Stundum
Eru dagarnir gráir
Ég vona að þú sjáir
Það birtir brátt til (þér í vil)

 

Þú átt traustan að
Er hér sama hvað
Bjátar nú á
Segðu honum frá

 

Segðu mér satt - Þér líður betur margfalt
Deildu með vin – Hann sefar huga þinn

 

Stundum
Eru dagarnir gráir
Ég vona að þú sjáir
Það birtir brátt til (þér í vil)

bottom of page